Innihaldslausar endurtekningar

Loxomma

08.11.2007 13:36:10 / Helga..

Tappamaskína með kornflex?

 

Í tilefni að því að það eru aðeins 2 dagar þangað til að bloggið hér á undan eigi mánaðarafmæli, datt mér svona í hug að skrifa eina færslu þótt ómerkileg sé. 

Öööö.. skooo.. hmmm.. annað punktablogg í röð? (og lýðurinn tryllist!)

  • Um helgina voru Emil & Hrund voru svo góðhjörtuð að bjóða einum leikhússjúkum sveitadurgi á sýningu í Þjóðleikhúsinu. Mér bara brá þegar ég sá salinn, svo stór! 30 fílar með offitu gætu auðveldlega búið þarna. Maður er bara búin að venjast svo litla og kósý salinum hérna á leikhúsinu á Ak :) EN já, ég fór að sjá sýninguna Leg eftir Hugleik Dagsson. Og ég get bara ekki sagt annað en þetta hafi verið fááááránlega mikil snilld! Það sem að þessum manni dettur ekki í hug! Allt góðir leikarar, en ég vil sérstaklega gefa Alta Rafn og Friðrik Friðriksyni gott klapp á bakið, og auðvitað Jóa líka.. hann klikkar ekki! Þessi sýning fær án efa 5 stjörnur af 5
.

"Þú ert eins og vondi kallinn í fimmta borði! ...Júdas! Neinei, þú ert eins og kallinn í lokaborðinu! LÚSÍFER!!" :'D

  • Jæja, svo um helgina er Morfís (ræðukeppni milli framhaldskóla) og MA tekur á móti FS. Sem þýðir það að..... HILDUR er að koma norður :D
  • Allt búið að vera brjálað að gera í leiklistinni undanfarið. F'or í prufu fyrir söngleikinn Wake me up sem á að setja upp hérna á Ak. Ég hef þetta bara stutt og segi að ég hafi gjööörsamlega skitið upp á bak og niður hinum megin. :$
    Svo var spunanámskeiðið að klárast :( Eeeen þetta var æðislega gaman!
    Og seinast en ekki síst þá er líka verið að æfa atriði fyrir árshátið MA, sem verður bara flott.
  • Annars bara þetta venjulega líf á vistinni. Alltaf fjör inni hjá okkur, kannski einum of mikið fjör stunum....
  • Ég fór í skálaferð með bekknum mínum í seinustu viku, sem var í heildina mjöög gaman.
  • Fór í bíó í gær með Hákon, Helga Frey, Ingva & vinum hans á Balls of fury. Talandu um ruuuuugl.

 

  • Hehe :haha:

 En jæja, ég ætla ekki að kvelja ykkur meira og enda þetta lélega blogg. 

Veriðiðiðiði bleeeeesss.

Helga.


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 20:43:27 / josa

taumlaus gleði :)

 

jójó!

hver segir að ég kunni ekki að blogga:O ég get sko alveg bloggað, bara heilan haug meira að segja ef mér myndi detta það í hug:) tss..

Allavega þá hef ég bara ekkert bloggað síðan ég byrjaði í MA :O sem er náttúrulega engin frammistaða ég veit :( een svona er þetta þegar maður hefur ógeðslega mikið að læra heima á hverjum einasta degi, þetta er nátturlega ekki heilbrigt! en já, ég fór í stærðfræðipróf í dag sem gekk reyndar ekki vel og ég vil ekki ræða frekar:D

ég er alveg ákaflega upptekin manneskja svo það er heppni að ég get gefið mér tíma núna til þess að blogga.. ég ætla að skella inn nokkrum mikilvægum punktum sem eru að gerast í lífi mínu svona til að sýna smá lit :)

  • Ég er í falskasta bekk í heimi, þau sungu fyrir mig afmælissönginn svo ég ætti að vita það :')
  • Ég vakna alltaf á undan Helgu á morgnana
  • læri að meðaltali 2 klukkutíma á dag eftir skóla :$
  • Halldóra er seinheppnasta manneskja sem ég þekki :') ég elskana
  • Rakel er best, fyrir utan að hún borðar ekki nammi :( það sökkar
  • þær eru með mér í bekk btw..
  • helga er í sturtu núna..
  • ég er búin í skólanum um hádegi á morgun, og svo er frí á föstudaginn :) vúhú
  • fjölskylduafmælið mitt verður haldið næstkomandi laugardag!
  • ég var útí súper að kaupa ananas
  • Hjörtur var að labba inn með cocoa puffs í poka!
  • ég er aldrei búin að fara snemma að sofa síðan ég flutti á vistina, aldrei friður:D
  • ég elska bekkinn minn :D hann er frábær :)
  • Karen Sif sendir mér sms á hverjum morgni "má ég koma núna?:)" hún er svo ágæt:);*
  • busapartýið var snilld:D
  • fyrsti-e er búinn að búa til heimasíðu, hún er b.c.is/fyrsti-e  endilega kíkja ;)
  • skálaferðin var ennþá betri í hnotskurn: læri, kónga, tommupizzur, vöfflur, tvister, bryggjusöngur, draugalabb, leti og lítill svefn:)
  • hér ætla ég að staldra við og skreppa til Rakelar í heimsókn því hún er nýbúin að taka til fyrir mig :)
  • herbergisnúmerið okkar helgu er 1101, fyrsta herbergið á jarðhæð :)

núna er ég hætt að vera löt við að blogga :D

the crowd goes: "suuuuuure"

haha, ég er tóm :)

Jósa?

p.s. hér er mynd af mér á leiðinni í busapartý :


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 14:50:22 / Helga..

Ertu gorkúla?!

 

Ég var að taka eftir einu, í bloggunum hjá okkur Jósu á þessari síðu skrifum við alltaf hve langt er nú síðan við blogguðum og hvað við ætlum að vera duglegar að blogga og setja meira inn á hana... og síðan gerist svo mikið sem ekki neitt. En well, fólk verður að sætta sig við það að okkur Jósu var kannski ekki ætlað að hafa bloggsíðu.
Skoðar einhver þessa síðu ennþá? :$

En já, margt búið að gerast síðan síðast!
-Við erum fluttar inn á vistinna, skólinn kominn langt á leið, að minnsta kosti skortir ekki heimanámið.
-Jósa átti afmæli í gær! Ég, Karen Sif, Bjarney, Halldóra & Rakel vöktum hana kl. 7 um morguninn með tilbúnar kökur (sem voru alveg heavy flottar enda bakaðar af okkur Karen Sif & Bjarneyju), mjólk, kórónu handa henni & gjöfum. Þetta tókst nú alveg nokkuð vel þótt að það hafi verið soldið púsluspil að passa að hún vissi ekkert af þessu. Myndir koma kannski inná frá þessu.
Alla vega, ég held að henni hafi þetta fundið alveg ágætur afmælisdagur :D
- Þorgeir bró átti reyndar líka afmæli sama dag & veisla var haldin á sunnudaginn :D

- Ég er núna búin að fara 2svar á Óvita hjá LA. Þetta er alveg frábær sýning & það kæmi mér ekki á óvart ef ég færi einu sinni enn. Þetta er nefnilega ekki bara barnasýning, hún er fyrir alla aldurshópa og lögin (sem að Jón Ólafs samdi fyrir sýninguna) eru alls ekki svo slæm, maður er bara alla daga með þau á heilanum!




- Og talandi um lögin, svo vildi til að ég fór með Kolbrúnu á tónleika  ...með Jón Ólafs :';) Ég veit, nú halda örugglega flestir að ég er búin að missa vitið, eeen tónleikarnir voru haldnir í leikhúsinu og ýmsir leikarar úr Óvitum tóku lagið með honum öðru slagið. Og ég er ekki frá því að ég er byrjuð að fýla lögin hans Jóns. Og vá, ég er heldur ekki frá því að hann er fanta góður húmoristi! Maður hló gjörsamlega að öllum bröndurunum hans  ...tja nema einum. Man ekki alveg hvernig hann var en það innihélt Innri Njarðvík :';)
Svo sat ég við hliðina á einhverjum þekktum íslenskum leikara 8) Man reyndar nú ekki hvað hann heitir í augnablikinu. En það besta við þetta að þessi maður hló svo mikið og svo hátt, og alveg rosalega smitandi svo að maður gat varla andað úr hlátri stundum.
En já, nú er ég búin að missa mig í umræðu sem enginn nennir að lesa :$
-Svo var ég líka að fá nýja fartölvu, græna Dell Insperation 8)

Og svo ýmislegt annað.

 

En já, kommentið þið ef það eru einhverjar hræður sem skoða ennþá þessa síðu :lol:

 

Helga.


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 21:09:18 / Helga..

Bjarni Ben ooog Doddi Mix! Og Erla?

 

"Well, this sucks!"

Nokkuð lýsandi orð yfir þessa síðu í augnablikinu, eða alla vega bloggfærslurnar. Meeen, við erum algjörlega búnar að missa það. But we´re taking it back 8)

Margt og mikið búið að gerast (ótrúlegt en satt), meira að segja of mikið til að telja það allt upp.
Nú styttist mjööög mikið í að skólinn byrjar og við Jósa flytjum í bæinn. Hún Jósa fer í 1.E (auðvitað;) og ég í 2.G :lol: Við erum búnar að fá herbergi á vistinni og svona, flytjum inn í það um helgina. 
Aðeins 5 dagar!

En já, þetta var bara eitt mega súper ómerkilegt blogg til að láta vita að við erum á lífi.
Eða hvað?? Kannski er ég bara vofa Helgu, líkið af henni er bara langt undir grænni torfu og grænum stein í stíl. Og ég bara svíf um á ósýnilegum svörtum Lexus, stoppa á ýmsum stöðum til að henda hundakúk í fólk sem Helga þoldi ekki þegar hún var á lífi. Og svo situr hún öll kvöld á fyrsta bekk á öllum sýningum LA. Ahhh..
Vóóó, ég er byrjuð að tala um mig í þriðju persónu. Segir það ekki manni að nú sé tími til að hætta?

Draumabílinn minn!!

Helga.


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 21:03:53 / josa

"Shark Tale"

 

 

ég vil líkjast Daníel og þú vilt líkjast Rut!

 Hér sit ég vegna þess að ég er búin að horfa á shark tale 4 sinnum núna á tveimur dögum og ég hef ekki orku í að horfa meira á hana með minni ástkæru systur Önnu Kristínu, hún er búin að sjá hana örugglega 676 sinnum, klárlega. Ekki það að ég hafi eitthvað á móti þessari mynd, þetta er ótrúlega framúrskarandi mynd, ég er meira að segja komin út í það að dansa með lögunum í henni, en þetta eru einstaklega góð lög sem eru sett saman þarna í þessari mynd. Fyrir þá sem það ekki vita, þá er shark tale teiknimynd um fiska, hún gerist neðansjávar og aðal fiskurinn heitir Óskar, hann vill verða frægur og vinsæll, þannig hann gerist "the shark slayer". Áhrifaríkur og skemmtilegur söguþráður sko! svo má til gamans geta að Will Smith, Robert De Niro, Angelina Jolie, Jack Black og Renée Zellweger tala öll í henni, ekki lítið frægar manneskjur. En það lýtur út fyrir að ég hafi misst mig í ákaflega aumkunarverðri frásögn af Hákarlasögu A.K.A Shark tale. Þetta sýnir einfalaldlega hvað mér leiðist ákaflega mikið í kvöld. Það liggur við að ég skýri titilinn "shark tale" það gefur í augum uppi þar sem ég hef ekki bloggað um neitt annað heldur en þessa mynd. Mér er farið að líða eins og manninum sem hafði ekkert að segja:cry:...... hann var grafinn lifandi!8|
Jæja, ég held ég fari bara, horfa á shark tale eða eitthvað álíka spennandi, endilega ekki láta ykkur leiðast svona mikið! takk fyrir áhorfið, sjáumst bless:)

p.s. Raulaðiru með í huganum þegar þú last eftirfarandi fyrirsögn "Ég vil líkjast Daníel og þú vilt líkjast Rut"


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 17:13:55 / Helga..

athathathath

 

Nýtt myndband komið inn á :D

http://www.youtube.com/watch?v=O2vHXNJG8lA

Endilega kommentið og segið okkur hvað ykkur finnst :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 17:36:20 / Helga..

Vandræðaleg móment.

Hellúúú.

 Ég ætla að setja inn eina stutta færslu áður en ég fer í útilegu upp í Rima að grilla sykurpúðana sem ég snýkti af Karen Björg 8) Ekki það að ég hafi einhvað merkilegt að segja, bara svo að það ríki ekki algjör bloggskortur.  
Það sem er mest að frétta af aulahumor- er að mjög fljótlega, ef ekki mánudag eða sunnudagskvöld kemur glænýtt myndband! Við Jósa erum svo stoltar af því að við setjum nafn okkar á það (þið vitið, I´m so proud of it....) , og myndbandafulltrúar ríkisins búast fastlega við því að það fari beint á toppinn! Við skulum bara vona það :lol:
Og og og og svo var ég að gera nýtt listaverk, kíkið á það!

Hey, ég var að pæla í vandræðalegum mómentum um daginn. Svo fór ég að rifja upp nokkur af vandræðalegum mómentum.... og já, þau eru svo mörg að ég veit ekki hvort ég að hlæja eða gráta! 
Ég man til dæmis að fyrir nokkrum árum þegar ég bjó í Reykjavík, þá tók ég alltaf rútu til Keflavíkur til að komast til ömmu og afa. Og einn daginn, fer ég með rútunni og kemst alheil til Keflavíkur. Ég kem út úr rútunni og sé afa standa þar, ég veit ekki af hverju en það sem ég gerði var að loka augunum og hljóp með faðminn út til hans. Svo þegar ég næ að faðma hann fannst mér þetta einhvað skrýtið og hugsa; "Vá hvað afi er búinn að fitna!". Svo opna ég augun og lýt upp, þá hafði ég verið að faðma einhvern ókunnugan rútubílsstjóra og afi stóð aðeins aftur við hann hlæjandi eins og aðrir þarna og rútubílstjórinn alveg hlessa! Mikið óskaði ég að ég hefði sokkið niður í gólfið á þessu mómenti...

Og svo var það eitt móment sem gerðist í vetur. Ég var að labba í skólann eftir hádegishlé, alveg sallaróleg. Var einhvað annars hugar og veit ekki fyrr en ég labba á fkn ljósastaur og dett aftur fyrir mig. Ekki nóg með það heldur gerðist þetta við hliðina á túristarútu sem var stopp, eftir að ég stend upp þá heyri ég svona bank á rúðuna og lýt upp, þá hafði einhver Kínverji séð mig og brosti til mín og gerði (Y) merki (svona þumalputtinn upp) til mín :'D

Ætli ég stoppi ekki núna, en mér þætti mjög gaman ef að þið kæru lesendur skrifuðu komment og segið ykkar vandræðalegustu móment! Er það ekki sniðugt? :D

Helga is out.


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 20:51:47 / josa

Hvað heita ormarnir í rassinum á þér??

 

Hooowdy partners!

Við ákváðum að blogga bloggið sem við lofuðum um seinustu helgina núna :D  

Þannig er mál með vexti að í dag þá vorum við að mála kastalann i leikskólanum sem var æðislega gaman þar sem Oddný var með dracula mola og djús meðferðis! Allt í einu þegar Oddný lá á bakinu fékk hún verk í rifbeinin, mjög líklega gömul meiðsli þar sem hún hefur rifbeinsbrotnað áður. Hún hélt þá leið sinnar heim þar sem henni var ráðlagt að sofna og fá sér verkjatöflu. Þegar Guðni kom aftur sagði hann að við þyrftum að fara aðra umferð yfir allt saman, þá urðum við gráhærðar með meiru! En þar sem við höfum sérstaka ofurkrafta og sterk bein þá var þetta ekkert mál fyrir okkur :) Við kláruðum kastalann eins og selir í sjó og hrepptum gullverðlaun! En ekki nóg með það, þegar við vorum að raða öllu dótinu upp í bílinn aftur þá fundum við þessa heiftarlegu íldufýlu sem gussaðist yfir okkar viðkvæmu nasarhár og gæti kæft hvern Grænlendinginn á fætur öðrum. En ei buguðumst við, við drógum andann djúpt og héldum í okkur andanum og hentum draslinu í skottið. Þá gerðist Guðni svo kræfur að hann keyrði yfir túnið á Lækjarvöllunum og sótti Hákon og sláttuvélina. Þegar uppí áhaldahús var komið tóku ekki við blíðlegar móttökur, ónei! við fengum rennandi blauta svampa í okkur og urðum fyrir ósniðugri árás af Gunnari Erni! Sem betur fer náðum við að hefna í litlum mæli reyndar. Honum mun hefnast, það munu bíða hans svo sársaukafullir dagar að hann mun ekki muna hvaða dagur er! múahhaha.
En þá er það hinn svakalegi seinni parturinn af deginum! Hvar á maður að byrja?? Kannski það að við horfðum á þrælmagnaða spennumynd, þ.e.a.s Mulan! Hörku hasarmynd sem lætur meira að segja njálgana í rassinum á Góa pissa á sig. Með þessari yfirþyrmandi og áhrifamiklu mynd fengum við okkur dipp og dorítos sem smakkaðist eins og himnaríki. Eftir myndina kíktum við aðeins á góðkunningja okkar Dr. Phil og sváfum vært yfir honum í smá stund.
Frááááábær dagur ekki satt?

Það er á hreinu að þið finnið ekki manneskjur sem lifa merkilegra lífi! bókað mál!

takk fyrir okkur..

veriði sæl..

bless..

 

Gauragangur í sveitinni.

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 21:09:31 / josa

hlaupandi marblettur!

*Knock knock*

"Who's there?"

"George" 

"George whooo?"

"George of the jungle!" 

 

 Jájájájájá! Ví ar bekk:D

Eins og kannski sést, þá eru eiginlega engar breytingar á þessari síðu, það má því túlka þessa breytingar sem pásu vegna leti og engu öðru en leti í okkur! en þar sem að nú erum við ekki búnar að vera með síðu geðveikt lengi, þá ætti ekki að verða svona gífurlegur bloggskortur alltaf :D

Og til gamans má geta að þessi síða varð eins árs þann 24. júní!

"hey, helga? eigum við að segja eitthvað fyndið núna eða?"

"tjaaa.. mér dettur ekkert í hug" 0

"okeibless"

Það sem þetta er einungs opnunarblogg, ef blogg mætti kalla, þá munum við koma með sterkt og innihaldsmikið blogg um helgina! Við vitum að þið munið æla mislingum þangað til!

Og fyrir alla þá sem fýla handlægar kringlur með kúmeni, viljum við benda á:
Franz Gallup, bakarason frá Sviss.

 

 NJÓTIÐ!

 

Venlig hilsen,

Lars og Ole.


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 16:46:51 / Helga..

Jólahvað?

Díses Kæst! Ó mæ god! Guð minn góður! Ó mæ fokking god! Sjæsinn! .... *orðaforði búinn*

Hvað þarf eiginlega margar Jósur og Helgur til að halda þessari síðu uppi!? 8|

Ég kenni "búin-að-vera-of-lítið-með-jósu-og-hennar-snilldar-húmor veikinni" um hvernig það er komið fyrir þessari síðu.

Nú bara þýðir ekkert annað en að fara hitta kellu oftar! Kannski við skellum okkur til Reyðarfjarðar (sem var kosið mesta skítapleisið af nokkrum Íslendingum, alveg satt) og björgum nokkrum hvölum & ástsjúkum mömmustrákum. Það er aldrei að vita.

En krakkar mínir. Viljið þið fá að vita svarið við þessari einfaldri gátu sem er hérna í seinasta bloggi? Ég trúi bara ekki að þið gátum hana ekki, ekki beint gáfað fólk sem heimsækir þessa síðu haaa ;) Nei ég segi svona..

Svarið eeeeer; Nú auðvitað Kjartan gamli (faðir Sigurjóns sem lést) sem stóð við leiðið. Og það var einfaldlega út af því að hann hafi fengið nýjar falskar tennur í gærkveldi!
Döööö!

Heeeelga..


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 15:45:14 / Helga..

Gugga slaka í að blaka

Ef þið getið þessa einföldu gátu, þá skulum ég & Jósa, hlaupa á skærgrænum sundbolum upp kirkjutröppurnar á Ak. og bjóða ykkur í ís á eftir! Díll?

Gátin er eftirfarandi;

Tvær mæður gengu hlið við hlið í átt að leiði Sigurjóns Kjartanssonar. Þær héldu í hvorri hendi svamp með mynd af tveimur flekkóttum tómutum. Í hinni hendinna voru 3 rauðar rósir og ónagaðar neglur. 17 mávar flugu fyrir ofan þær og voru að deila um hver væri með fallegasta brosið. Einn mávanna flýgur þá á klett sem stóð austur fyrir garðshorn. Þá fara alla mávarnir að hlæja.
Spurningin er; Hver var með fallegasta brosið? :lol:

Reynið nú að giska ;)

Helga..


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 03:11:51 / josa

taugatrekkjandi hláturgas!

*andar djúpt og FAST í gegnum nefið*

*kafnar í eigin hori*

BÚIÐ!!!

nei plat:)

 

LOKSINS erum við samankomar aftur á ný! laaaaangt síðan við höfum bloggað saman og því verður þetta óvenjulegt og framúrskarandi með áhrifamiklum hraðasveiflum og nikótínafrakstri!

shake that ass for me, come on girl, shake that ass for me..

wrarrr.. kisulóra..

 

Sængurver er nýkomið úr ofninum og bíður þess að láta flengja sig! sænskur blokkflautuleikari lét raka á sér rasshárin því mamma hans er með ofnæmi fyrir K45m veirunni! Fuglaflensan hefur lengi beðið þess að komast til íslands í sumarleyfi, en hattar hafa slegist um sjónvarpsrásir of lengi til að manneskja geti snúð sér í fjóra hringi og gert froskahopp með ís!

vá:') erum orðnar of þreyttar til að halda áfram með þetta blogg.. þannig að hér stöldrum við við, og kyrjum!

hhaaammmmm...

hhaaammmmmm...

ahh..

miiklu beetra8)

öll orka okkar fór í að skrifa aðdáendabréf handa Stefáni svo hér verðum við að kveðja ykkur..

og í kvöld fengum við einnig okkar fyrsta aðdáendabréf.. viljum deila því með ykkur..

Aðdéndabréf

Ég, Stefán Óli Bessason er hér með að skrifa opið aðdéndabréf til www.b.c.is/aulahumor- þar sem ég hyggst reyna lýsa aðdáunn minni á þessari síðu. Þrátt fyrir ýtrekaðar tilraunir mínar síðustu 10 mín c.a hefur mér ekki enn tekist að koma tilfinningum mínum í orð, 100 orð eru kannski "too much" eins og maðurinn sagði, á svona líka góðri íslensku. Húmor, grín og glens hefur verið í hávegum höfð á þessari síðu síðustu misseri, landsmönnum öllum til mikillar kæti. En öllu gríni fylgir einhver alvara, og þar er aulahumor- engin undatekning. Grafalvarleg hreyfimyndagangrýni og ögrandi viðtöl við landsþekkta Íslendinga svo fátt eitt sé nefnt. Þykir þetta hin fullkomna blanda af húmor og dauðans alvöru. Þetta líkar undirrituðum vel. Jafnvel svo vel að opinber aðdáendasíða verði sett upp á næstu misserum (Þó svo að nefndin þori ekki að fullyrða það, þar sem hún á við fjárhagsleg, andleg og síðast en ekki síst líkamleg vandamál að stríða).

Ég veit ekki alveg hvað ég var að fara með að skrifa þetta bréf en vona að þið njótið.

Hér kveð ég að sinni, hafið það gott, verið góðar við pabba og mömmu og munið að gefa fullfisknunum

;Stefán

vonum að fleiri munu berast okkur.. :)

viljum þó líka minna á að skoða "nýtt" því helling hefur bæst við á síðuna og mun halda áfram ;)

ogjá! eitt í viðbót, við höfum ákveðið að setja inn nýjung! Þ.e. "spádómskassinn" við erum jú þekktir spámenn um víða veröld og ef þið viljið að við spáum fyrir ykkur, þá einfaldlega setjið þið nafn og afmælisdag í gestabókina og þið munið fá spádóm fyrir mánuðinn! spádómurinn birtist í "spádómskassanum" í "gums-"

umferðaskilti út!

Járnsmiður&hanskahólf.. :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 15:45:22 / josa

í dag eða aldrei!

Góðan og blessaðann daginn :) (svona segir pabbi alltaf við mig þegar ég vakna seint8))

nú hef ég ákveðið að blogga;)

Þannig er mál með vexti að ekki á morgun heldur hinn byrjar skólinn aftur:O vá hvað það er stutt! ég allavega þarf að fara að snúa sólarhringnum við, það er á hreinu! vaknaði klukkan hálf 6 í gær og núna hálf 3 :) þannig að þetta er allt í áttina ;)

en núna í morgun fæddist Kjartan Valur :) nýjasti meðlimur ættarinnar :D get ekki beðið eftir að fá að sjá drenginn :D mamma sagði mér þetta í morgun og ég þurfti að hringja aftur í hana til þess að athuga hvort mér hefði dreymt þetta eða ekki :L er aldrei með meðvitund á morgnana :)

en núna sit ég hér í þægilegasta stól í heimi *hóst* *kafnar* *lætur lífið* og með guiding light hárgreiðsluna mína, í jarðaberjanáttbuxunum og læt mér dreyma um að standa á fætur og hefja nýjan dag, sem er dálítið seint núna, því dagurinn er meira en hálfnaður :lol:

en núna ætla ég að rifja upp lag sem ég og Helga sömdum eitthvert kvöldið úti á labbinu, það var heiðskýrt og himinnin fallegur, kvöldgolan blasti við okkur, og enginn á ferli.. hér kemur það..

Framtíðin er björt

en ekki fyrir hann Hjört

Því hann drap hjört

og þetta er sagan um kööött!

vá, ég tárast bara.. þetta er alveg einstaklega vel samið og hjartnæmt..

enjæja.. ég hef bloggt!

dancing dude

ástarkveðja, Jósa límonaði 8|


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 03:13:39 / Helga..

Laaa..

Jæja jæja jæja. Nú er um að gera að hífa upp um sig buxurnar, girða þær upp í heila, setja kaggann í 5. gír og skella inn laufléttu bloggi!

Spurningin er bara, um hvað á ég að blogga?

*Hugs*

*Meira hugs*

*Flauuut*

*Lýt flóttalega í kringum mig*

Hugsa; "Hmmm.. hvað ætli séu margar ljósaperur í seríunni sem hangir í glugganum?"

Tralalala..

Okei! Ég veit hvað ég ætla að blogga um! .....nei annars. Jú heyrðu! ...nei það gengur ekki. Ég held að það væri bara ósköp sniðugt að blogga þegar ég hef einhvað til að blogga um. Svoooo..

I´ll be back! *James Bond theme byrjar, ég tek forseta Rússlands, hoppa út um gluggann á 17. hæð með fallhlíf, fallhlífin klikkar, ....oó!*

Helga..


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 02:32:27 / josa

næst?

"Klöppum fyrir stelpunni sem þurfti að láta að reka á eftir sér til að blogga"

ég er nú aaalveg sko! er alfarið búin að láta Helgu sjá um þetta:L

en jæja, hér ligg ég uppí hlýju rúminu mínu og er gjöörsamlega að leka útaf :) var að koma úr afmælisveislu :Dhann Bjarni litli frændi minn orðinn 2 ára :D til hamingju með það :haha:;** En ég er búin að vera í bænum í allan dag að klára að finna jólagjafir sem ég er ekki búin með8| er reyndar búin að vera í bænum alladaga síðan á mánudaginn:D fer aftur á morgun :).

Annars fer að styttast ískyggilega mikið í jólin :D alveg bara nokkrir dagar;)

ég er tóm í hausnum og með lokuð augun svo ég ætla að fara að sofa :) kem með miklu lengra og sterkara blogg næst :D loofa :)

þangað til..

fáið ykkur rjóma :)

góða nótt;**

J


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1691 dögum